Lífshlaupiđ :)

Auglýsing

.....Búturinn....

When I lost my grip
And I hit the floor
Yeah, I thought I could leave but couldn't get out the door
I was so sick and tired
Of a livin' a lie
I was wishin' that I
Would die

It's Amazing
With the blink of an eye you finally see the light
It's Amazing
When the moment arrives that you know you'll be alright
It's Amazing
And I'm sayin' a prayer for the desperate hearts tonight

>Amazing- Aerosmith<

Flokkar

Ice Girls... !!!!

28. febrúar 2008 klukkan 12:57








Smá til að lýsa betur við hvað var átt með færlunni fyrir neðan.  Þeir sem ekki kveikja, þá er ég Ginger-spice!!


p.s. annars gleymdi ég að segja frá því í síðustu færlu að pabbi hringdi í mig á laugardag og tilkynnti mér að þau (hann og Arna þá væntanlega) hefðu skroppið og gift sig fyrr um daginn.  Svo ef þið hittið þau á förnum vegi þá vitið þið af þessu...:)

smá update

25. febrúar 2008 klukkan 17:37

Nýtt markmið er að reyna að blogga aðeins oftar en einu sinni í mánuði á næstu mánuðum... en hér sit ég nú, og blogga.

Síðastliðna helgi var árshátíð og söngkeppni Bifrastar haldin á Hótel Loftleiðum.  Þar tókum við okkur nú til, nokkrar hressar skjátur (tjah... já... fimm) og komum okkur í gamla Spice Girls gírinn.  Ekki létum við okkur nægja að semja dans og skipta laginu sómasamlega niður á milli okkar, heldur tókum við þetta alla leið og skiptum okkur niður í hlutverk með tilheyrandi búningasprelli.

Til að gera langa og skemmtilega sögu stutta og auðvelda þá sigruðum við þessa keppni...
Ég veit líka að við fengum heilan helling af einhverjum verðlaunum en það eina sem ég man úr því er flísteppi frá 66° norður.

Á sunnudagsþynnkudegi vöknuðum við Sindri svo á hótelherbergi, sem við þurftum okkur til mikillar gleði að skila á hádegi.  Skruppum þá til næringar og heimsóknar til bróður míns.  Eftirmiðdeginum eyddum við í að láta einhvern sölumann hjá Nova fá okkur til að kaupa 10.000 kr. dýrari síma en við höfðum ætlað að kaupa okkur, og enduðum við á því að labba þaðan út með eins síma í sitthvorum litnum.  Næst ætlum við að fá okkur eins Adidas galla í sitthvorum litnum... þetta stefnir í eitthvað hallærislegt allavega... hehe.

Nú sit ég hér að setja inn á nýja símann hin ýmsu lög til að hringitónarnir verði nú almennilegir.... :)

Vantar bara Dararamm eða Statt´ann drengur inn á iTunes-ið til að setja þegar pabbi hringir....

hittumst heil!


HVEM??

  • Nafn: Sigurlaug Jónsdóttir a.k.a. Silla
  • Netfang: sillaraza@hotmail.com
  • Stađur: Fellbćr city
  • Atvinna: Nemi í viđskiptadeild Háskólans á Bifröst og Vinn hjá Intrum á Íslandi
  • Hjúskaparstađa: tjah... í sambúđ... međ strák....
  • Um mig: Hvađ get ég sagt? síhlćjandi, sívćlandi, sítalandi, ögrandi, öskrandi, ör fjandi?, andandi, hugsandi og elskandi tilfinningavera. :)

It's PICTURETIME!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...