Lífshlaupiđ :)

Auglýsing

.....Búturinn....

When I lost my grip
And I hit the floor
Yeah, I thought I could leave but couldn't get out the door
I was so sick and tired
Of a livin' a lie
I was wishin' that I
Would die

It's Amazing
With the blink of an eye you finally see the light
It's Amazing
When the moment arrives that you know you'll be alright
It's Amazing
And I'm sayin' a prayer for the desperate hearts tonight

>Amazing- Aerosmith<

Flokkar

Djöfulsins andskotans snilld sem ţetta er!

27. október 2007 klukkan 23:12



Þetta er ein mesta snilld sem ég hef séð eða heyrt lengi....  Kjartan Svanur var að vafra á netinu í leit að góðu gamni þegar að hann rakst á þetta líka ótrúlega skemmtilega myndband.  Hér hefur verið blandað saman lögunum Sweet Child of Mine og Times Like These...!!

Ég er að fíla þetta! COMMENT!
 


Winningpool - án orða.... orðlaus að sinni!

Min telefon...

20. október 2007 klukkan 14:19
'Ætlaði að blogga um eitthvað skemmtilegt, veit meira að segja hvað það á að vera... en svo fann ég þennan spurningalista og ákvað að fresta hinu blogginu.... því ég er alveg að fara í sturtu.

Most people can't live without their mobile... so here's a survey about it. Okay? Go Grab your phone!

Did you grab it?:
jebb

1. What color?
Grár, dökk og ljós

2. Who's the first person who comes up under the letter M?
M´.Rán (Margrét Rán)



3. Who's the last person you called?:
Freyja

4. Who was your last missed call from?
Mömmu

5. Who's the 3rd person who comes up under D?
Davíð Einar

6. Who's speed dial 2:
Tóti - Þórarinn Páll.... hef ekkert stillt þetta, er ekki alltaf að hringja í hann Guðný!

7. Who's the 2nd person who comes up under J?
Jeremías Hólmar (Eða Jarþrúður Hólmdís réttu nafni)

8. Who was your last received call from?
Sigrúnu Rósu...:)

9. Who's speed dial number 4:
Gugga-Guðbjörg Oddsdóttir

10. What is your background?:..
Bjórglös og setningin: "Beauty is in the eye of beerholder"

11. How many text messages are currently in your inbox?
189 skilaboð

12. Who's speed dial number 6?
Heima hjá Guggu, karlottu og Oddi

13. What's the 5th message say in your inbox?
Það eru upplýsngar um Enskan setter hund, 6 mánað hvolp....

14. Who's the 1st person who comes up under B?
Barbara hjá Dómus

15. Who was your last text message from?
Gaua Emils...

16. Name every person you have text messages from?
úfff... okey:
Gaui, Hjördís Marta, Davíð Einar, Margrét Dögg, Arnar Páll, Ebbi api, Sigrún Jana, Freyja, Aðalst. Ingi, Hjalti Jón, Andri Guðlaugs, Hafþór Valur, Frosti, Krummi, Lovísa, Kjartan Svanur, Aldís Fjóla, Árni Páls (hahaha! SEM VERÐUR ALDREI EYTT), Fanney, Sverrir Páll, Kolla Linda, Einhver Ómar sem ég þekki ekki , Stefnir, Bergdís, Sindri, Linda Hrönn, Heiðdís Sóllilja, Ingunn Sig, óli Rúnar, Antonía, Hafsteinn Már, Perla, Raggi, Hildur Sig, Stefán Ómar (samt Fanney), Hófí, Pétur Ármanns, Ármann og Alfa, Louise, Stefán Ólafur.

Spurning um að fara að taka til í þessu inboxi... það tekur heilt kvöld!¨hehehe

18. Who's the 9th person on your missed calls?
Mamma.... haha!

19. What does the 6th message in your Outbox say?
Er ekki með átbox

20. Who is the first name in your Phonebook?
!Kolla Linda!... því nöfn með merkjum fyrir framan koma fyrst.

21. Who is the last name in your Phonebook?:
Örvar Már

22. Do you have a camera phone?
Nóbb...

23. Who is the last person under G:
Gyða

24. What does your first text message say?
hahahaah!!  uuuu það stendur:

oh hún var svo þröng! .. skilaðu því til hennar or die!


Jæja... almennilegt blogg sem þarfnast aðeins meiri sköpunargáfu eftir ekkert svo langan tíma...!

Er ţađ satt sem ţeir segja um landann?

15. október 2007 klukkan 13:02

Eftir skóla á föstudag kastaði ég nokkrum flíkum niður í tösku og brunaði af stað í Ulrich Orkubolta austur á Hérað.  ég vissi að geðheilsa mín yrði að vera í mjög góðu jafnvægi vegna þess að ég lagði upp í þessa ferð ein.  Byrjaði á því að verða með þeim óvinsælari í Norðurárdal þegar að ég stoppaði fyrsta stopp eftir að ég lagði í reisuna, það stopp var í Hreðarvatnsskála.  Tók þar bensín og nennti ekki að færa bílinn því ég ætlaði rétt að hoppa inn og kaupa mér eina TILBÚNA kalda samloku.  En svoleiðis varning selja þau ekki á Hreddanum, þannig að ég varð að bíða í smá stund eftir að kokkurinn væri búinn að útbúa handa mér samloku með skinku og osti.  ég hugsaði stanlaust á meðan ég var þarna inni hvort ég ætti ekki að hlaupa út og færa bílinn en komst alltaf að þeirri niðurstöðu að það tæki því ekki því ég væri við það að fá samlokuna mína.  Þegar að ég fæ hana svo í hendurnar rölti ég út um dyrnar og sé þá hvar nokkrir sveitapikkupsmenn standa og klóra sér, ekki svo kátir, í hausnum yfir Ulrich Orkubolta... ég spretti af stað, set bílinn í gang og færi hann en passa þó allan tímann og líta ekki framan í mennina.  Spurning hvort ég verði að kaupa mér annan bíl ef ég ætla að fá að vera hér í allavega eitt og hálft ár í viðbót.

Ég held ferð minni áfram, hlustandi á einhverja ægilega Nostalgíu diska sem að Katrín skrifaði þegar að ég var í 10. bekk.  Allt gert til að halda geðheilsunni í lagi. 
Næsta stopp var Blönduós, því ég keyrði framhjá þar sem ég gat pissað í Víðigerði.
Allavega, þetta er nú ekki frásögu færandi nema af því að í N1 skálanum á Blönduós voru svona 20 stelpur á aldrinum 12-13 ára (ég er samt ekkert svakalega góð í að giska á aldur en segjum það) að borða pizzu.  Ég skottast þarna inn og fer inn á klósett.  Á meðan að ég er á klósettinu koma inn 3-4 af þessum stelpum.  Ein til viðbóra kemur útaf klósettinu við hliðiná mér og segir við einhverja þeirra sem standa við vaskana:

stelpa 1: Nei, varst þú líka að hlanda?
stelpa 2: ha?? Hvað sagðiru? landa?
stelpa 1: hahaha... nei, ég sagði: varst þú líka að hlanda?
stelpa 2: já, hahah... ég skil... Stelpur! Vitiði samt hvað landi er?
stelpur: *vita beisiklí ekki hvernig þær eiga að svara þessu*
Stelpa 2: Landi er ólöglegur bjór sem er bruggaður á klósettsetum (innskot. Býst hér fastlega við að hún hafi verið að meina í klósettskálum)
Stelpur: oooooojjjj.... ertu ekki að grínast? oooojjjj....
Ein stelpa: Hvernig þá?
Stelpa 2: hann er settur ofan í klósettið og svo er pissað á hann...!!!
Stelpur: oooojjjj....
Stelpa 3: Maður getur líka gert hann heima hjá sér með því að setja hann í klósettsetuna!
Stelpur: oooooojjjjj....

Ég kem út af klósettinu að vöskunum og stelpurnar verða svo skelkaðar að annað eins hef ég ekki séð! Hlaupa út af klósettinu og ná ekki einu sinni að loka áður en þær deyyyja nota bene úr hlátri.  Þrátt fyrir það ein besta fræðsla sem ég hef fengið um landa.

þetta hélt mér hálfhlæjandi í nokkra klukkutíma held ég bara.



Þar sem fiskurinn og kjötið sem ratað hefur inn fyrir mínar varir síðastliðinn mánuðinn hafa verið í mjög takmörkuðu magni, getið þið kannski vel ímyndað ykkur hversu hamingjusöm ég var með það að vera að koma heim í Lagarfellið.  ég hafði hringt í pabba um hádegi, þegar að ég var að leggja af stað, og tilkynnt honum að ég yrði í kvöldmat.  Þegar að ég er að keyra Heiðarendann hringir hann svo í mig til að tilkynna mér það að það sé fínn matur út á flugvelli, því þar sé einhver ferðakynning.  Þann dag fékk ég því rækju og kjúklingaspjót ásamt snittum og rjómabollum í stað hins langþráða heimilismatar.
Föstudagskvöldinu eyddum við Freyja síðan í það að skreppa pínu á Nielsen, elta leigubíl, eftir það sjúkrabíl og loks löggubíl.  Fleiri bílar voru eiginlega ekki á svæðinu svo við fórum bara heim að horfa á mynd um himnatíki og helvíti og málverk eða eitthvað.....

Á laugardagsmorgun skrapp ég með bílinn minn í Dekkjahöllina að láta umfelga... keyri bílnum upp á lyftarann og drep á honum, ætla svo að stíga svona líka létt út úr honum en stíg á helvítis angann sem sveflast útum allar áttir (held það sé tjakkur), ligg þarna á lyftunni og ætla að nota vinstri höndina til að ýta mér upp en tylli henni þá á aftari angann og dett algjörlega kylliflöt.... í nýjum gallabuxum og pæjustígvélum.... þarna standa 5 karlmenn sem hlæja að mér í staðinn fyrir að svo mikið sem hjálpa mér á fætur....!!!
Þegar að ég fór svo að borga sagði Kristdór mér það að ég væri alls ekki sú fyrsta sem lenti í þessu svo ég ætti ekki að hafa neinar áhyggjur, hann lenti sjálfur í þessu reglulega.  Það varð til þess að græða sálarsárin að miklu leyti en marbletturinn á vinstri rasskinninni á mér lagaðist ekkert við þetta!


Restin af helginni var að mestu hrakfaralaus, ég fékk bæði fisk og lamb, hitti Möggu og Svandísi, Hjalta Jón, Öglu, Sigurveigu og fleiri góða.

Lagt var af stað til Borgarfjarðar síðri um kl.13 á sunnudag, þar sem ég var ekki lengur ein á ferð heldur hafði ein rauðhærð með krullur ákveðið að skella sér með til baka.  3 klst af ferðinni var eytt í "Hver er maðurinn?" þrátt fyrir að sjaldnast höfum við nú verið mennskar í leiknum.... persónur eins og Fagri Blakkur, Andrés Önd, Rafiki og fleiri góðir voru mun ofar í huga okkar.

Fín keyrslu helgi.... sannkallað Road Trip... reykjavík á morgun.

Gáta fyrir gáttađ fólk...

08. október 2007 klukkan 20:57


Hvað er fyndið við eftirfarandi fullyrðingar:


-> Ég var í prófi í morgun, gekk illa og féll á tíma.
-> Ég á eftir að klára þjóðhagfræðiverkefni í kvöld
-> Ég komst að því kl. 18 í dag að ég er að fara í próf í Markaðsfræði í fyrramálið
-> Tölvan mín tók upp á því fyrir um 2 tímum að geta ekki startað sér, eitthvað ekki að virka í stýrikerfinu og lítið hægt að gera í því FYRR EN Á MORGUN!
-> Ég er ekki búin að vista neitt af gögnunum sem eru inní þessari tölvu einhversstaðar annarsstaðar.
-> ......og ég er að vinna!


Hvaða partur af þessu finnst ykkur hlægilegur??

Engin?





Ekki mér heldur.

Aijhk...

Sunday, bloody Sunday...

07. október 2007 klukkan 17:51
Sunnudagur....

Gleði?? &Oacute;&aacute;kve&eth;inn

Já, þetta er bara nokkuð gleðilegur sunnudagur.  Það sem er slæmt er það að ég er að fara í próf á morgun og hef ekkert litið svo mikið á efnið.  Það sem er hins vegar gott er það að ég keypti mér gratineraða idiot-proof eldamennsku ýsu.... !!!! Og ég hef þráð fisk svo alltof lengi!! 

Er að reyna að tímastjórna mér... það gengur ekkert svo vel.... Kl. 18 ætla ég til dæmis að "halda áfram að læra" (eða byrja að læra öllu heldur)

Langar svakalega að gera allt annað en læra núna.... mig langar meira að segja að taka til!  Þetta er einhver sjúkdómur sem ég hef ekki fundið fyrir áður, ætti kannski að panta mér tíma hjá lækni.  Einhverjar heilastöðvar í mér að framleiða of lítið af lærdómsmetnaðarefni og of mikið af "ég er til í að gera allt annað en læra, meira að segja taka til" efni....

En er almenn sunnudagsgleði í gangi eða er þetta bara ég?

  Ef þið hringið og skemmið fyrir mér lærdóminn lofa ég að gera sunnudaginn ykkar ógeðslega skemmtilegan!!


Later...

Something new for my baby...

04. október 2007 klukkan 08:52
Ef þið viljið kíkja á eitthvað nýrra og ferskara en þessa síðu þá getiði droppað við á

bifrostskvisur.bloggar.is


EN EKKI YFIRGEFA ÞESSA!

Hugsađ í hringi en endađ í.... aumingi?

03. október 2007 klukkan 23:07
Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verið yfirnáttúrulega heimskur stundum.  Maður er svona að spá í eitthvað, veit svarið við því... enda búin að spá í hlutinn í margar vikur jafnvel og oftar en 15 sinnum komist að niðurstöðu, en kannski bara svona 3 sinnum þeirri sömu.  Með eða án áhorfs á Dr. Phil telur maður sig vera búinn að finna útúr öllum sínum persónulegu málum og komin að niðurstöðu um að taka hlutunum svona eða hinsvegin.  Þrátt fyrir að vera  búin að taka þessa ákvörðun dettur maður áfram inn í það að hugsa um sama hlutinn aftur og aftur í hvert skipti sem maður þjáist af athyglisbrest varðandi það sem maður á að vera að gera, og enn og aftur fer maður að velta sér uppúr sömu þvælunni sem oft er ekki einu sinni í okkar valdi að útskýra.

Ég geri mér ekki alveg fullkomlega grein fyrir því hversu margir skilja þessa málsgrein hér að ofan, en þetta er nákvæmlega sá pakki sem ég var að detta inn í fyrir svona 10 mínútum síðan.  Búin með eitt verkefni, að velta fyrir mér hvort ég ætti að halda áfram að læra og dett ofan í sömu vitlausu hugsanirnar og hafa verið að herja á mig síðustu vikur... og þetta er einmitt dæmigerður hlutur sem ég á aldrei eftir að fá niðurstöðu í og aldrei í lífinu eftir að geta stjórnað.  Í þessum sömu hugsunum og venjulega ákveð ég að skoða stjörnuspánna mína.  Læt mér ekki næga að skoða hana bara á www.mbl.is, heldur líka á www.leit.is/stjornuspa því mbl.is sagði mér ekki nógu mikið um málefnið sem ég var að hugsa um. 

Mbl.is stjörnuspá:


MeyjaMeyja: Þorðu að segja sannleikann og það mun opna nokkra hurðir fyrir þér. Sannleikur er galdraorðið sem framkallar tækifæri þegar það er sagt.


Ég hugsa alveg í þaular hvernig þetta getur tengst "vandamáli" mínu sem ég hef verið að reyna að díla við síðustu vikur, en finn ekki eina einustu tengingu við það.  Ákveð því að þessi stjörnuspá hljóti bara að snúast um eitthvað allt annað sem mér finnst ekki jafn spennandi og að hugsa um sama hlutinn og síðustu vikur svo ég nenni ekki að spá meira í hana og fer á www.leit.is/stjornuspa :

Meyjan  ::  23.ágúst-22.sept
 
Stjarna þín er án efa fær um að njóta stundarinnar með réttu hugarfari en á það til að gleyma að rækta andann. Þú virðist hafa komið verkefni af stað sem mun stækka til muna og gera mörgum gott innan þriggja mánaða miðað við stjörnu meyju hér.

Ég hugsa strax: Hef ekki verið að njóta stundarinnar í dag... er ég ekki með rétta hugafarið? svo hugsa ég strax að mér sé alveg nákvæmlega sama því þetta tengist alveg greinilega ekki þessu umtalaða máli sem ég er með á heilanum.  Gleymi ég að rækta andann?  Hmmm... skil ekki þetta comment strax svo það er þurrkað út á nóinu.  Síðasta setningin ætti sennilega að kæta fólk sem er undir stjörnu meyjunnar og hefur verið að hugsa um hvort eitthvað sem það sé að leggja vinnu í geri öðrum gott síðustu vikurnar, það er ekki mitt case svo ég basically ignora það...

Ekkert svo hamingjusöm með útkomu stjörnuspánnar minnar verð ég hálf vonlaus yfir þessu öllu saman (athugið samt að ég er að sjálfsögðu löngu búin að finna niðurstöðu vegna þessa "vandamáls").  Sit hér, alveg í mínus, að sofna ofan í tölvuna þegar að mér er litið á link á www.leit.is/stjornuspa sem heitir DRAGÐU SPIL! 
Þar setur þú inn þær hugsanir sem að eru að angra þig (í flestra tilfelli case-ið sem þau eru samt að sjálfsögðu löngu búin að finna út sjálf án hjálpar tarrot-spila) og dregur svo (eða öllu heldur smellir á) eitt spil í bunkanum.





XI - Réttvísi

Hér kemur fram að þú notar snertingu sjaldan en notar meira orðin til að tjá hug þinn og tilfinningar. Þú þráir einhverja spennu hérna og innst inni hefur þú jafnvel óbeit á þeirri vandlega heftu skynhneigð sem fyllir umhverfi þitt.

Þú ættir að takast á við tilhneigingu þína til að bæla veikleika og gera aðra ábyrga. Þér er ráðlagt að hlusta vel og vera þolinmóðari en þú ert fær um að horfa inn á við og sjá það sem liggur yfirleitt á bak við oft örvæntingarfullan takt þinn og kröfur.

Óttinn við að hleypa öðrum inn og við að gefa tilfinningum þínum lausan tauminn ætti að hverfa þegar þú staldrar við og biður um leiðsögn varðandi ástina. Réttvísin tengist vali þínu og ekki síður tilfinningum þínum í garð félaga þíns. Ef val þitt hefur í för með sér vanlíðan ættir þú að staldra við og spyrja þig hverjar afleiðingar verka þinnar eru líklegar til að verða.

© 2007 Spámaður - Ingunn ehf.




Og viti menn! Allt í einu meikar allt saman svo mikið sens... loksins eitthvað að viti! Þrátt fyrir að þetta sé reyndar svo langur texti að möguleikinn á að þú finnir ekkert við þitt hæfi í honum lítill.  Og þú ferð hamingjusamur að sofa þrátt fyrir að hafa að sjálfsögðu alls ekki þurft að láta tarrotspil segja þér hvernig þú ættir að leysa þitt vandamál því þú varst löngu búinn að fatta það sjálfur! Hlæjandi


Alveg ótrúlegt hvað maður getur endalaust spilað á sjálfan sig.  Og ef að stjörnuspár væru nú raunverulega að segja manni eitthvað að gagni, myndi maður nokkurn tíma taka eftir því vegna þess að maður er alltaf að einblína á kolvitlausa hluti? 
Get ég fengið að skipta mér út?


Þetta er ekki biturt blogg, bara hugdettur. Viðringar fyllst.

Harka og hörđ tár

01. október 2007 klukkan 21:31
Mér sýnist á öllu að ég verði að henda inn nokkrum orðum hérna, færslan fyrir neðan er farin að mygla.

Laugardagskvöldið var tekið í nefið, næstharðasta gellan í bransanum (á eftir mér) hún Freyja mín tók mig að sér og útvegaði mér gistingu heima hjá tengdó í Borgarnesi (eða  kannski reddaði Ebbi henni...) og við ákváðum að kíkja út á lífið.  Það var of mikið einhvernveginn af öllu, of mikið af rigningu, of mikið af vindi, of mikið af videospólum með gömlum körfuboltaleikjum, of mikið af ógeðslegu áfengi ofan í ekkert svo mikinn bjór.
Fyrstu klukkutímana fannst mér ég ekki finna fyrir nógu miklum áhrifum af alkahóli, ákvað því að taka ekki svo freistandi boði um að drekka eitthvað frekar ógeðslegt asinton... eða það bragðaðist allavega eins og asinton.  Þetta var heldur ekkert svo góð hugmynd í ljósi þess að yfir mig helltist einhver athyglisverðustu drykkjuáhrif sögunnar. 

Við skulum fyrst rifja upp klassíska drukkna Sillu:

-Mjög rauðar kinnar og mjög rauð haka
-Mjög hávær
-Mjög óþolinmóð
-Ákaflega dugleg við að arka á milli staða...
-Ótrúlega dugleg í framleiðslu á aulabröndurum
-Mjööööög hreinskilin.... of hreinskilin.
-Oft síflissandi...
-...ef ekki síflissandi þá síhreytandi einhverju í fólk...
-Mikið í eigin heimi, ekki góður njósnari fyrir slúðurblöð... hehehe...
-Mjög oft með myndavél...
-já og hææææææææææææææææææj! Koss koss knús (eða ég tek ekki eftir neinum)
-ógeðslega hress og skemmtileg semsagt


Okey, þetta er svona basikið, endilega bætiði einhverju í kommentin ef ég er að gleyma einhverju... ekki segja samt neitt ljótt... hehe...

Einu áhrifin af upptöldum sem ég fann fyrir í fyrrakvöld voru óþolinmæði og hitinn í andlitinu.  Aftur á móti voru ný áhrif til staðar, sem ég hef aldrei upplifað áður... Við getum lýst þessu með smá dæmisögu.
 
Við skelltum okkur á Dússabar (sem er barinn í Borgarnesi) og þar voru staddir tveir eldri menn... annar þeirra var mjög hrifinn af andlitinu á mér og dásamaði það endalaust.  En ég var ekki alveg nógu ánægð með þetta greinilega því ég nánast því hljóp út af barnum og fór að gráta yfir þessu öllu saman.  Veit ekki hvað við þetta var svona agalega sorglegt, en samt greinilegt að ég var ekki að fíla þessa athygli.
Fyrr má nú aldeilis vera grenjuskjóða Gr&aacute;ta
Fimm mínútum áður hafði ég hins vegar verið fyrir utan skellihlæjandi að tala við Margréti í símann og sveifla mér svona léttúðlega í einhverju pípugrinverki... !!!

Ég trúi því hins vegar að ég sé alveg geðveikt hörð gella svo ég gæti hafa misst pínulítið kúlið þarna... jafnvel..... kannski mögulega.

Komin með kveðjuna á þetta, lifið heil... brosandi....! Engin tár takk!

Silly Billy Zilanuvitz, harðasta grenjuskjóða samtímans...! Hooooja!

HVEM??

  • Nafn: Sigurlaug Jónsdóttir a.k.a. Silla
  • Netfang: sillaraza@hotmail.com
  • Stađur: Fellbćr city
  • Atvinna: Nemi í viđskiptadeild Háskólans á Bifröst og Vinn hjá Intrum á Íslandi
  • Hjúskaparstađa: tjah... í sambúđ... međ strák....
  • Um mig: Hvađ get ég sagt? síhlćjandi, sívćlandi, sítalandi, ögrandi, öskrandi, ör fjandi?, andandi, hugsandi og elskandi tilfinningavera. :)

It's PICTURETIME!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...