Excel, my loverboy,,,
Á hvaða tímapunkti í Viðskiptafræðináminu ætli manni fari að finnast Excel merkasta uppgötvun lífsins?
Ég bíð spennt.
Fellabær CITY komst á síður mbl.is í gærdag, þó ekki fyrir það að vera lítill og fallegur bær í þetta skipti, heldur vegna þess að Tékkneska parið sem setið hafði fast í bílnum sínum í nágrenni Öskju höfðu víst skilið eftir einhver fótspor eftir sig í mínum yndislega heimabæ. Það vakti athygli mína að orðið Fellabær fengi stað í greininni en ekki Fljótsdalshérað eða jafnvel Egilsstaðir.
Í þessu skrifaða augnabliki sit ég í UPST (Upplýsingatækni og stjórnun upplýsingatækja) og hlusta á alla þá möguleika sem við eigum ef við ætlum að kópera úr excel yfir í Word. Ég finn hvernig ég verð bara öll miklu gáfaðri við það að heyra þetta allt saman, en kannski þetta sé mjög merkilegur fyrirlestur fyrir þá sem hafa aldrei uppgötvað paste special, svo ég ætti kannski að hætta að höndla þetta með kaldhæðni.
Auk þessa erum við líka að læra hvernig við getum sorterað hinar ýmsu upplýsingar með excel... ótrúlega spennandi allt saman.
Hlakka pínu til að fara yfir í forritun... ætli maður geti líka notað helling af litum þar? Væri leiðinlegra að missa út aðaláhugamál mitt í þessu fagi, að búa til þessi líka glæsilegu litaþemu.
Vakti til kl. hálftvö í nótt við að reyna að ákveða hvernig ég ætti að hafa þvottasnúrurnar inni í herbergi hjá mér. Þær setti ég þó ekki upp í þeim tilgangi að hengja á þær þvott, heldur ljósmyndir.... Eins og þetta lítur út í augnablikinu minnir þetta örlítið á kóngulóarvef, en ég er að vinna í því að finna út hvernig ég geti eitt þeirri hugmynd úr hausnum á mér... Herbergið er því allt að verða persónulegra og hvítu veggirnir eru hættir að pota úr mér augun í hvert skipti sem ég geng þarna inn.
Komiði í heimsókn krakkar!
Fyrst í hnapphelduna - niđurstöđur
Fyrst í hnapphelduna?
Held því fram að allir þeir sem kusu mig séu einhverjir sem þekkja ekki hina í könnunninni :)
10 sunnudagshlutir um mig.
Tíu hlutir um þig.
1. Ertu í sambandi? nei
2. Ertu hamingjusöm/samur? hmmmmmm.... það veit ég ekki! Líður fínt allavega!
3. Leiðist þér? nehei.... er á Skaganum hjá henni Freyju, þar leiðist manni aldrei :)
4. Ertu sorgmædd/ur? nei, ekki beint.... er samt pínu sorry eitthvað.
4. Hvernig er hárið á þér? Allt út um allt, því ég hef ekki enn skellt mér í sturtu.
5. Augnlitur? grængrár
6. Afmælisdagur? 15. september
7. Skap? það er aðeins svona að sveiflast eitthvað.... er eitthvað pínu óöryggi í gangi.
8. Um hvað ertu að hugsa? Akkúrat núna? Hver þessi "Gettu hver!" er sem kommentaði undir síðustu færslu og hvar þessi glaðningur sem hann/hún lofaði mér er!
9. Nothæf/ur? hehehehe.... það fer eftir því um hvað við erum að tala.
10. Örvhent/ur eða rétthent/ur? rétthent
Tíu hlutir um ástarlífið
1. Hefuru verið ástfangin? já....... of oft, of vont.... ég er algjör hálfviti í þessum málum!
2. Trúiru á ást við fyrstu sín? heh....ég segi ekki ást, en ég segi crush.
3. Afhverju entist síðasta sambandið þitt ekki? af því bara.. hehehe.... nei, við áttum ekki saman, það að vera vinir og par er alls ekki sami hluturinn þó stundum geti maður nú ruglast á því... :)
5. Hefur þú sært einhvern? Það gæti nú verið, en ég tel mig nú ekki svo valdamikla að það sé eitthvað sem viðkomandi kemst ekki yfir. :)
7. Hefur þér einhvertíman líkað við einhvern en ekki sagt þeim það? óóóójá, ekki góð hugmynd
8. Ertu hrædd/ur við skuldbindingar? nei.... ekki hrædd, en stundum finnst mér ég vera að missa af einhverju öðru.... Verð að hætta því!
9. Hefuru kysst einhvern í vikunni? jahá...
10. Hefuru átt leyndan aðdáanda? nei..... eða Gettur hver!!!?
Tíu hitt eða þetta
1. Ást eða losti? HVoru tveggja, ekkert án hvors annars
2. Sterkt áfengi eða bjór? njaaa..... var alltaf Sterkt áfengi en er að þroskast yfir í bjórinn
3. Hundar eða Kettir? hundar
4. Fáa góða vini eða marga venjulega vini? ææææ.... það verða bara allir sem mér dettur í hug að séu vinir mínir að hlusta á mig, svo það er ekkert val. Þessir venjulegu eru þess vegna ekki til fyrir mér... á bara góða vini.
5. Sjónvarpið eða internetið? æææ.... komin með nett ógeð á hvoru tveggja.. blöð og bækur?
6. Pepsi eða kók? Pepsi MAX
7. Villt nótt úti eða rómantísk nótt inni? Villt úti klárlega....!
8. Svart eða hvítt? svart
9. Nótt eða dagur? nótt
10. Msn eða sími? Sími..... msn er samt fínt... :)
Tíu hefur þú einhvertíman.
1. Verið gómuð/gómaður á að læðast út? hahahaha.... já! Einu sinni í sumar. Í eina skiptið sem ég hef reynt að læðast út.
3. Gert eitthvað sem þú sérð eftir? nei.... meira hef ég séð eftir að hafa ekki gert eitthvað!!!
4. Farið í teygjustökk? nei
5. Farið í húsbát? Húsbát???? Hver fjandinn er það... eitthvað svona hjólhýsi á floti eða?
6. Klárað heilan kjálkabrjót? nei.... Klárað? Ég hef bara smakkað Jaw breakers tyggjókúlur og maður klárar vanalega ekki tyggjó, maður hendir því bara.
7. Viljað eitthvað/einhvern svo mikið að það var sárt? jáááááááááá!!!! óóóóó, já. Hvernig væri að svoleiðis dæmi færu að snúast við? Að það myndu allir vilja mig svo mikið að þeim finndist það sárt?? Þá gæti ég allavega huggað þá....
8. Viljað þinn fyrrverandi/þína fyrrverandi aftur? nei....
9. Grátið útaf því að gæludýrið þitt dó? já, enda lét ljótur og feitur köttur Pása fá hjartaáfall.... og Páfagaukar hafa svo lítið hjarta.
10. Viljað hverfa ? já... :)
Tíu seinustu ..
1. Seinasta manneskja sem þú hringdir í: Ebbi
2. Seinasta manneskja sem hringdi í þig: Mamma
3. Síðasta manneskja sem þú hékkst með: Þessi helfi hefur nú verið eitt alsherjar hangs... Freyju, Ebba og Dabba.
4. Síðasta manneskja sem þú faðmaðir: Einn svolítið myndarlegan og sætan strák :)
5. Síðasta manneskja sem þú talaðir við á msn: Fanney Vigfúsdóttir í Köben.
6. Síðasta manneskja sem þú fórst í bíó með: Perla, Hjördís, Stjáni og Frosti
7. Síðasta lag sem þú heyrðir? Íslenskt og öflugt kántrílag sem heitir Lukku Láki...
Góðan sunnudag ástarvinir mínar...
7:57
Ég vaknaði kl. 7:57.... tíminn byrjar kl. 8. Þar sem mér finnst mjög dónalegt að ryðjast inn á fyrirlestra, þá er ég núna að bíða eftir að fá merki um að það sé pása, svo ég geti smyglað mér inn. Þegar að ég fæ skilaboðin þarf ég að stökkva af stað, setja niður tölvuna og hlaupa út í skóla. og þá ætla ég að vera BÚIN að drekka skyr.is drykkinn minn.
Ekki svo góð byrjun á þessum elsku degi.
Lesa glósur..?? Já....
Ţau skreyttu jólatré í júní og karlinn sagđist vera kind...
Jæja....Skellti mér á Franz Ferdinand síðustu helgi sem var mikil gleði fyrir utan það að þolinmæði mín gagnvart Jakobínurínu var ekkert svakalega mikil. Þegar að maður er að bíða eftir svona stóru bandi nennir maður ekki alveg að vera að einbeita sér að því að hlusta á eitthvað minna merkilegt. Það þarf þá allavega að vera fyndið. Reyndar hélt ég að upprunalega hugmyndin af upphitunarbandi væri band sem gæti komið fólki í stuð og gert það svolítið kátt og svona fyrir stóra bandið. Mér finnst það almennt ekki alveg vera að gerast á tónleikum á Íslandi... fólk er meira svona ekki að nenna að mæta fyrr en aðalhljómsveitin byrjar að spila bara.
Allavega, Agla mín! Takk fyrir að vera best og gefa mér þennan miða í afmælisgjöf! Þrátt fyrir þennan endi á kvöldinu var hann pínu fyndinn, því þegar að þú fórst út sagðiru: "Svo hringiru bara ef þetta klikkar eitthvað!" 2 mínútum seinna dó síminn minn.... alveg!
Vil líka þakka Bergdísi fyrir að vera hress kona og bjóða mér í köku morguninn eftir.
og Perlu fyrir gistinguna! Og gjafapappírinn.... :)
Síðast en alls ekki síst vil ég svo þakka Lindu Hrönn fyrir að fara fram úr rúminu fyrir mig og ná í mig í bæinn! Það var ómetanlegt!
Á afmælisdaginn skellti ég mér síðan austur í Skaftártungu á Réttarball. þar voru jólin! Í orðsins fyllstu.... grenitré með miklum snjó á út um allt.... og bara snjór útum allt! Hjördís skellti sér nú með mér í þá svaðilför og tók að sjálfsögðu með sér Hrísafmælisköku handa mér :)
Hér hef ég annars bara verið í því að gera verkefni og skila þeim... eða svona yfirleitt. Skilaði stolt öðru verkefni í arðsemisgreiningu í gærdag. Síðan í gærkvöldi tók ég mig til og ætlaði að aðstoða einn dreng við síðasta liðinn í þessu verkefni og þurfti til þess að opna verkefnið mitt. Þá tók ég eftir því mér til MIKILLAR furðu, og eiginlega hjartastopps að ég hafði ekkert skilað verkefninu, það er svörunum. Ég hafði skilað leiðbeiningunum.... OG það kemur bara fyrir mig!
læra...!!!!
1. vikan í herbúđunum
Fyrsta vikan hér í háskólaþorpinu hefur verið u.þ.b. 180% vinna. Og svoleiðis mun það verða næstu 9vikurnar. 4 verkefni í viku eru staðreynd, og so far eru 2 og hálft búið og þess vegna aðeins 37 og hálft eftir. :)
Þessi verkefni eru miserfið og mistímafrek, t.a.m. eyddi ég rúmum 9 klst í excel verkefni í gær, sem ég er þó ekki alveg búin að klára. Svona er lífið yndislegt. Ef það væri ekki fyrir skemmtilega útlitsfídusa í excel, þá hefði ég sennilega hætt í skólanum í gær.
Á þriðjudagskvöldið var "family-time" yfir Jay Leno í Vallarkoti 3. Gestir þáttarins voru Dr. Phil og litla konan úr Grey's anatomy (einhver sagði bitch-ið, but I wouldn't know því ég hef ekki horft á þá). Í lok þáttarins standa þau öll hlið við hlið og einhverjir fara að tala um hvað þessi kona væri lítil... ég benti kurteisilega á það að hún stæði við hliðiná Dr. Phil. Dettur þá ekki sú gullna staðreynd
Ég hélt því fram að ef svo væri þá fengi hann bara dverga í þáttinn sinn því þar virkaði hann frekar stór sko. Silla fór í google leit og fann svo þar að loka biography of Phil McGraw þar sem stendur skýrt og greinilega að hann sé 193 cm! Bara svo þið vitið það ef þið skylduð lenda í rökræðum um þetta, því það gerist jú.

-Obbobbobb... It's time to wake up and do something about it - svipurinn!-
Í síðustu viku hringdi Agla í mig og bað mig vinsamlegast að taka frá kvöldið í kvöld fyrir smá afmælissprell. Ég var eitthvað treg til því ég ætlaði austur í Skaftártungu í kvöld og í réttir þar í fyrrmálið. Þá gat stelpan ekki haldið leyndarmálasprelli fyrir sig lengur og sagðist ætla að gefa mér miða á Franz Ferdinand í afmælisgjöf, eftir það hugsaði ég mig um í 5 daga og komst að þeirri niðurstöðu að ég myndi skella mér á tónleika og fara svo bara í réttir á morgun. Hjördís ætlar að sjálfsögðu með.. :)
Hlakka til morgunsdagsins, þrátt fyrir að talan 21 sé alls ekkert spennandi. Það er eitthvað óspennandi við hana.
Læt þetta duga í bili Margrét mín, meira af fréttum fljótlega.
Vil samt enda á því að gleðjast yfir því hvað það hafa margir verið duglegir við að kommenta... endilega halda þessu svona áfram :)
kveðja úr Bjórbænum...
Silla er fitubolla = Tími fyrir teiti!?!?!?!
Nýnemakvöldið var haldið í Hreðarvatnsskála eða Hreddanum eins og Bifrestingar vilja kalla þetta. Skólafélagið sá fyrir bjór á milli kl. 20 og 22 sem gerði það að verkum að fólk mætti svona uppúr kl. 20... veit samt ekki fyrir víst hvort þessi stundvísi og gjafmildi skólafélagsins tengist, en finnst ekki þess virði að rannsaka það frekar. Málið telst því upplýst.
Skólafélagið setti í byrjun kvöldsins af stað einfaldan leik sem fólst í því að hver maður fékk 4 póstteygjur sem hann setti á hendina á sér. Svo í hvert skipti sem viðkomandi gaf sig á tal við einhvern, sem fékk hann til að segja nei, þurfti viðkomandi að gefa eina teygjuna til hins aðilans. Með öðrum orðum máttiru ekki segja nei. Ég er að eðlisfari vingjarnleg og afar easy þannig að teygjurnar mínar voru allar horfnar af hendi mér áður en hálftími hafði liðið. Tókst þó að ræna einni teygju af Hófí þegar á leið án þess þó að hafa ætlað það, fékk eiginlega samviskubit yfir þessu... svona er maður brjálaður keppnismaður.
Þetta kvöld var mjög vinsælt að spyrja fólk hvort það ætti eld... fólk var líka mjög duglegt við það að falla fyrir þessari brellu.
Eftir að Ingó Idol hafði slitið streng, misst gítarnöglina og stungið stólnum aftur fyrir sviðið og þar af leiðandi næstum því dottið, tók hann svona 43 lokalög og eftir það var rölt af stað heim. Ekki var tekið til greina að fara að sofa og því ákveðið að skreppa í partý heima hjá einhverjum... á undan mér þangað löbbuðu 2 frakkar sem endurtóku sífellt orðin "Silla fat" að mér fannst.... ég var ekkert svakalega ánægð með þetta hlutskitpi mitt, gangandi fyrir aftan útlendinga sem voru að baktala mig, og héldu að ég skildi þá ekki. Eftir að hafa hlustað á þá endurtaka þessa setningu óhóflega tók ég mig til og barði einn þeirra í öxlina!
ÉG: Stop saying I'm fat!!!
FRAKKI: What? I'm not saying your fat!
ÉG: DA! I heard you... my name is Silla and your were saying "Silla fat"!
FRAKKI: *Hlær* Your name is Silla? Okay.... because Silla fat (nema ég kann ekki að skrifa það á frönsku) means Partytime in french....!!!
Ákaflega glöð með það að skiptinemarnir séu ekki enn farnir að tala illa um mig... :)
Þessi Frakka félagi minn tilkynnti mér það hins vegar eftir að vera búinn að reyna að kenna mér að segja "Það er partý í rassinum á þér" á frönsku í þónokkurn tíma, að ég hefði ákaflega sexy hreim þegar að ég talaði frönsku! Ég og íslensku strákarnir vorum þó sammála um að það væri bara þegar að ég talaði frönsku...
Í morgun breyttust allir vinnuhópar á 1. ári í bresku leyniþjónustuna og áttu að leysa verkefni undir tímasprengju. Hópurinn minn, sem við höfum nefnt Dragon Group (slagorðið: Eldmóður!) stóð sig að sjálfsögðu besta allra, og leysti verkefnið á 11 mínútum, án þess að þurfa að kaupa sér vísbendingar. SVONA er maður klár!
Í dag er ég svo búin að sitja í 2 og hálfan tíma undir fyrirlestri um gegni.is.. GEGNIR.IS er ekki svo flókin síða!
.................................KOOOSSSSS........................
Skólasetning
... ég er drukkin...
... en samt á lífi....
og ég trúi því að það sé fyrir öllu!
jaháááááá!!!!




