Lífshlaupiđ :)

Auglýsing

.....Búturinn....

When I lost my grip
And I hit the floor
Yeah, I thought I could leave but couldn't get out the door
I was so sick and tired
Of a livin' a lie
I was wishin' that I
Would die

It's Amazing
With the blink of an eye you finally see the light
It's Amazing
When the moment arrives that you know you'll be alright
It's Amazing
And I'm sayin' a prayer for the desperate hearts tonight

>Amazing- Aerosmith<

Flokkar

Rauđvín og Baileys

03. maí 2009 klukkan 00:49

Nú hef ég verið þekkt fyrir það í nokkurn tíma að vera fremur latur bloggari, og ávallt lofa ég því að það muni breytast og viti menn það verður engin breyting á því í dag, því hér með lofa ég að reyna að standa mig mun betur í þessu öllu saman!
Þessa dagana skiptast á skin og skúrir bæði hvað veðrið og skapið í mér varðar.  Einn daginn er ég í þvílíku sumarskapi og hinn daginn átta ég mig á því að það er ekkert spennandi að fara að gerast í lífi mínu í fyrirsjáanlegri framtíð og þá fer sumarskapið eitthvað annað... ég held því þó fram að þetta sé allt bölvað væl og eigi ekki við nein rök að styðjast; ég sé einfaldlega vælukjói og vitleysingur.  Og það er svosem ekkert að því að vera vælukjói og vitleysingur, það er betra en að eiga við raunveruleg vandamál að stríða allavega.

Að öðru, í síðustu viku byrjuðum við í stelpuboltanum aftur og á æfingu númer 3 fór ein úr hnjálið svo það er ekki hægt að kvarta yfir því að það gerist ekkert í sveitinni. Þetta var sannkallað hetjuatriði þar sem Pétur Darri kippti stúlkunni í liðinn á meðan Sindri Þór spretti sem enginn væri morgundagurinn heim að sækja hjartaklakana góðu úr Byggt og Búið til að leggja á löppina á henni.

Kvöldið í kvöld fór í gott grill, gott spjall og gott snakk með góðu fólki, en verkefni sem er hér að ganga að öllum dauðum verður svo tekið upp að nýju á morgun en það verður 4 dagurinn sem í það verður eytt.



Hvernig í ósköpunum gerðist þetta samt?? Það er engu líkara en kona með einhver undarleg trúabrögð hafi uppgötvað neonlitina 15 árum of seint og ákveðið að sauma eitthvað af því tilefni. Vill einhver finna hana og segja henni að það sé ástæða fyrir því að efnin með neonlitunum hafi verið svona ódýr.... en svo er annað mál af hverju í ósköpunum Jessica Alba fékkst til að klæðast þessu. Mér finnst þetta sóun á myndarleika, þegar að svona falleg kona tekur ákvörðun um það að vanvirða fegurð sína á þennan hátt! Ég stend hér á gati!!


JESSICA ALBA photo | Jessica Alba


Ætla að skella mér að horfa á Bigger, faster, stronger í sófanum hérna hliðiná stólnum sem ég sit á... eins og þið heyrið er um meiriháttar tilfærslu að ræða svo ég verð að láta að bloggstörfum í kvöld.

Gott gengi!

Zilanuvitz

Sigurlaug Jónsdóttir a.k.a. Sillatékk tékk
#1
03. maí 2009 klukkan 13:41
 
Ella Magga
Mér fannst þetta alls ekki vera alls ekki neitt :)

Dramasögu frá Bifröst- nauðsyn að vita
Jessica Alba Faux Pas- toppurinn af degi minum sem fer mestmegnis í franska gubbu-málfræði :)

Keep up the good work :)
#2
03. maí 2009 klukkan 17:33

Skrifa athugasemd

HVEM??

  • Nafn: Sigurlaug Jónsdóttir a.k.a. Silla
  • Netfang: sillaraza@hotmail.com
  • Stađur: Fellbćr city
  • Atvinna: Nemi í viđskiptadeild Háskólans á Bifröst og Vinn hjá Intrum á Íslandi
  • Hjúskaparstađa: tjah... í sambúđ... međ strák....
  • Um mig: Hvađ get ég sagt? síhlćjandi, sívćlandi, sítalandi, ögrandi, öskrandi, ör fjandi?, andandi, hugsandi og elskandi tilfinningavera. :)

It's PICTURETIME!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...