Lífshlaupiđ :)

Auglýsing

.....Búturinn....

When I lost my grip
And I hit the floor
Yeah, I thought I could leave but couldn't get out the door
I was so sick and tired
Of a livin' a lie
I was wishin' that I
Would die

It's Amazing
With the blink of an eye you finally see the light
It's Amazing
When the moment arrives that you know you'll be alright
It's Amazing
And I'm sayin' a prayer for the desperate hearts tonight

>Amazing- Aerosmith<

Flokkar

Crazyness....

24. október 2008 klukkan 11:38
Sorry sorry sorry endalaust.... ég bara hef verið á haus að vinna að einhverjum verkefnum hér á Bifröst og það hefur verið að drekkja mér illa....
Það er 8. vika í skólanum af 11 sem segir okkur að það eru 3 vikur í lokapróf.  Það er ekki að gera mig glaða, það er að gera mig vægast sagt stressaða þar sem ég hef lítið komist í að lesa bækurnar fyrir verkefnavinnu.  ég veit ekki hvernig maður á að komast yfir þetta allt saman.


Um helgina ætla ég nú samt að fara héðan og anda pínu að mér öðru umhverfi í þeirri von að koma full af eldmóði til baka og með aðeins meiri lestrarhraða og enskukunnáttu væri fínt líka.

Það verður reykjavík í dag - pínu útréttingar
Svo gisti ég hjá Möggu minni og Sindri fer í Hveragerði.
Á morgun þurfum við stöllur svo að skjótast í eitt brúðkaup í Borgarnesi eða svo til að sinna hjálparhellu hlutverki fyrir hana Freyju.
Svo fer ég aftur með Möggu í bæinn og þangað sækir Sindri mig og við förum til Hveragerðis.
Á sunnudaginn er svo skírn á Selfossi hjá Ingunni vinkonu minni og ætla ég að reyna að stinga inn nefninu þar áður en við brunum í bæinn í mat til Sigga bróður.


Þetta er planið - ómerkilegt að öllu leyti... aðallega af því að það er ekkert  gaman að lesa það og jafnvel af því að það er svo þétt að engu má bæta við.


Svekkelsi vikunnar: Ég er ekki ennþá búin að sjá Mamma Mia! Svekkjandi? I know!
Verkefni vikunnar: Klárlega verkefni í reikningshaldi og bókhaldi sem tók alltof marga klukkutíma en ég fattaði hvernig ætti að stemma af kl. 2 í fyrrinótt!
Harðsperrur vikunnar: Get ekki valið, en það var vont að setjast í gær og í fyrradag!
Matur vikunnar: Lambalærið í gær, og brownies og kakó.... oooojjjjojoj....


Hey! Mætingarlistinn er að ganga í tímanum sem ég er í! Ætla að skrá mig og fara!

bestu kveðjur heim til ykkar allra

Silla - metnaðurinn í fyrirrúmi... ekki svefn allavega

Ómerkilegt plan??? Hvað meinaru??? Ég er hálfmóðguð! Þú nefnir nafn mitt í plani þínu og segir það svo ómerkilegt... hmm hvar ætli ég láti þig gista í nótt??

jú í forstofunni, þar er ómerkileg motta :)

nei grín.. :) hlakka til að fá þig í heimsókn og hlakka til að sofa hjá þér ;)
#1
24. október 2008 klukkan 12:50
 
Steinunn
Ég er mjög sátt að sjá nýtt blogg.. En ég var á rölti um kaupfélagið okkar um daginn og rakst á svona billy pizzusneiðar sem að við vorum alltaf að borða þegar við unnum saman.. Verðum enilega að hittast við gott tækifæri og borða svoleiðis saman;) hehe..
#2
25. október 2008 klukkan 16:06
 
Hjördís Marta
Jeijj blogg!! Gleði gleði gleði!!!

Núna er ég einmitt að vinna skemmtilegt verkefni á dönsku, um aðgang almennings í danska náttúru! Þetta er vægast sagt fróðlegt og áhugavert get ég sagt þér, en þetta blogg bjargaði mér frá því í ca 5 mínútur!! Yndislegt...! Verð að muna að knúsa þig fyrir það næst þegar við hittumst!

Hey... hvernig verða samt jólin hjá þér væna hæna? Og áramótin? Kemurðu ekki örugglega í Fellabæ city?? Fyrr en seinna??? Það VERÐA allir að koma heim um jólin!!! Allt annað er svindl og sifjaspell!

Heyrumst sæta

Bæjjjj ;)
#3
26. október 2008 klukkan 18:37
Margrét: ég hlusta ekki á svona rugl, enda búin að ræða þetta við þig...
Steinunn: Klárlega!! Með svolítilli kokteilsósu og deeeyja síðan saman í maganum á eftir af "ógeðismataráti"
Hjördís: Veit ekki, ekkert búið að ákveða, finnst samt líklegt að ég verði hjá mömmu þar sem ég var hjá pabba síðast....
en þá kem ég allavega á milli jóla og nýárs og tek djömmin (þ.e.a.s ef einhver verður í lagarfelli 21 til að taka á móti mér)
#4
26. október 2008 klukkan 23:30
 
Aldísin..
hæ krúsímús.. þetta er náttúrulega klárlega gríðarlegt plan.. og ég er búin að sjá mamma mia... ;)
#5
27. október 2008 klukkan 12:46
Heyrðu frú Sigurlaug! Ef það er enginn annar að taka á móti þér í Lagarfelli 21 hlyep ég bara yfir götuna og geri það! Það er ekki neitt annað í boði en að koma allaveganna smá og knúsa mig!
#6
29. október 2008 klukkan 15:07

Skrifa athugasemd

HVEM??

  • Nafn: Sigurlaug Jónsdóttir a.k.a. Silla
  • Netfang: sillaraza@hotmail.com
  • Stađur: Fellbćr city
  • Atvinna: Nemi í viđskiptadeild Háskólans á Bifröst og Vinn hjá Intrum á Íslandi
  • Hjúskaparstađa: tjah... í sambúđ... međ strák....
  • Um mig: Hvađ get ég sagt? síhlćjandi, sívćlandi, sítalandi, ögrandi, öskrandi, ör fjandi?, andandi, hugsandi og elskandi tilfinningavera. :)

It's PICTURETIME!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...