"Mér finnst ţú aaalls ekkert stíf"
Ég hef heyrt mjög mismunandi skoðanir á þessum þáttum, en framtakið eitt og sér finnst mér eiga mörg prik skilið. Mín persónulega skoðun sem nemandi í viðskiptafræði er sú að það hefði ekki verið hægt að finna meira óspennandi starf fyrir hinn almenna borgara að ímynda sér heldur en áhættustýringu. Þetta gerir það að verkum að í hvert skipti sem Ástríður kynnir sig "Sæll, Ástríður, áhættustýring" þá flissa ég...

´
Kíkið á þessa þætti, mana ykkur! (nema þú Fanney, þú þolir ekki að horfa á þætti sem byggjast á vandræðilegum augnablikum)
Rauđvín og Baileys
Nú hef ég verið þekkt fyrir það í nokkurn tíma að vera fremur latur bloggari, og ávallt lofa ég því að það muni breytast og viti menn það verður engin breyting á því í dag, því hér með lofa ég að reyna að standa mig mun betur í þessu öllu saman!
Þessa dagana skiptast á skin og skúrir bæði hvað veðrið og skapið í mér varðar. Einn daginn er ég í þvílíku sumarskapi og hinn daginn átta ég mig á því að það er ekkert spennandi að fara að gerast í lífi mínu í fyrirsjáanlegri framtíð og þá fer sumarskapið eitthvað annað... ég held því þó fram að þetta sé allt bölvað væl og eigi ekki við nein rök að styðjast; ég sé einfaldlega vælukjói og vitleysingur. Og það er svosem ekkert að því að vera vælukjói og vitleysingur, það er betra en að eiga við raunveruleg vandamál að stríða allavega.
Að öðru, í síðustu viku byrjuðum við í stelpuboltanum aftur og á æfingu númer 3 fór ein úr hnjálið svo það er ekki hægt að kvarta yfir því að það gerist ekkert í sveitinni. Þetta var sannkallað hetjuatriði þar sem Pétur Darri kippti stúlkunni í liðinn á meðan Sindri Þór spretti sem enginn væri morgundagurinn heim að sækja hjartaklakana góðu úr Byggt og Búið til að leggja á löppina á henni.
Kvöldið í kvöld fór í gott grill, gott spjall og gott snakk með góðu fólki, en verkefni sem er hér að ganga að öllum dauðum verður svo tekið upp að nýju á morgun en það verður 4 dagurinn sem í það verður eytt.
Hvernig í ósköpunum gerðist þetta samt?? Það er engu líkara en kona með einhver undarleg trúabrögð hafi uppgötvað neonlitina 15 árum of seint og ákveðið að sauma eitthvað af því tilefni. Vill einhver finna hana og segja henni að það sé ástæða fyrir því að efnin með neonlitunum hafi verið svona ódýr.... en svo er annað mál af hverju í ósköpunum Jessica Alba fékkst til að klæðast þessu. Mér finnst þetta sóun á myndarleika, þegar að svona falleg kona tekur ákvörðun um það að vanvirða fegurð sína á þennan hátt! Ég stend hér á gati!!
Ætla að skella mér að horfa á Bigger, faster, stronger í sófanum hérna hliðiná stólnum sem ég sit á... eins og þið heyrið er um meiriháttar tilfærslu að ræða svo ég verð að láta að bloggstörfum í kvöld.
Gott gengi!
Zilanuvitz
Natasha Richardson látin...

Sá það á mbl.is í morgun að Natasha Richardson er látin eftir að hafa lent í óhappi á skíðanámskeiði. Fyrir mér hefur Natasha Richardson alltaf verið mamma Lindsay Lohan, alveg frá því að ég sá Parents Trap í bíó árið 1998. Það vill samt sennilega engin vera í því þessa dagana, ekki einu sinni alvöru mamma Lohan, en í huga mér eru þær bara alltaf mæðgur. Reyndar er Lindsay Lohan tvíburar í mínum huga líka en það er annað mál.
Ég man svo vel eftir því þegar að Hjördís eignaðist spóluna með Parents Trap og við horfðum á hana milljón sinnum, enda aðalleikonan jafn gömul okkur, eða 12 ára. Við lærðum meira að segja klappið sem hún heilsar Brytanum með, en það krafðist samt mikilli æfinga. Okkur fannst líka stórmerkilegt þegar að við sáum á kredit-listanum að tvíburarnir væru báðir leiknir af sömu manneskjunni og hugsuðum mikið um það hvernig hún myndi t.d. faðma sjálfa sig.
Þegar að ég var stödd í Danmörku árið 2005 ákvað ég svo að splæsa myndinni á mig fyrir 50 DKK, sem var lítið þá. Myndin var svo meira og minna í DVD spilaranum mínum allt sumarið 2006 þar sem að ég sofnaði yfir henni eftir mörg hver Hetjudjömmin... gullmoli!

Helst...
Annað áhugavert sem ég rakst á mbl.is var nýtt fíkniefni að koma á "markað" í svíþjóð. Það heitir mefedron og er líkt við krakk, svona fyrir þá sem eiga leið þangað á næstu dögum.
ekki fleira í bili...
góðar stundir með eða án mefedron og Bubba Morthens!
Geir Ólafs og Gossip Girl
Þegar fólk vill fréttir - þá fær fólk fréttir, það er ekki flóknara en svo.
Frá síðustu færslu hafa margir margir dagar liðið, en idol-ævintýri mitt tók þó alls ekki marga slíka. Eftir að hafa ákveðið um klukkan 1:30 daginn fyrir áheyrnaprufur að ég skyldi nú drífa mig þá lá ég andvaka til um rúmlega 4 í stresskasti yfir að gleyma textanum af öllum lögum sem ég kann. Vaknaði svo eftir 1 og hálfan tíma af frekar lélegum svefn og dreif mig af stað ásamt Hófí til Reykjavíkur. Og það er víst ekki satt að allar ákvarðanir séu réttar ákvarðanir því þetta ævintýri mitt sem kostaði mig svefn og geðheilsu var lokið um hádegi. Með öðrum orðum: Ég komst ekki einu sinni í gegnum forvalið, og fékk því ekki að syngja fyrir hina einu sönnu dómnefnd!
Það sem mér þótti þó kaldhæðnislegast var að þegar að ég var að ganga út af Hilton hótel mætti ég Geir Ólafssyni, sem labbaði eins og hann væri með gúmmífætur og sagði svo við mig: "Hva? Bara dottin út?" og glotti! Mörg mjög ljót comeback komu upp í huga minn á þeirri stundu, en þar sem ég hef byggt upp í mér mjög mikinn sjálfsaga þá sleppti ég öllu skítkasti!
Í dag eru 2 vikur í lokapróf og ég verð heldur betur að spýta í lófana, þrátt fyrir að hafa aðeins verið 1,5 undir hæstu einkunn í síðasta prófi í stjórnunarbókhaldi. En mín einkunn var þó aðeins 5.
Leti og aðrir leiðinlegir lestir hafa svolítið sest að í líkama mínum þegar að þa kemur að náminu, en þá hefur Gossip Girl alveg hjálpað andlegu hliðinni. Ég hef reyndar verið að hugsa hvort ég eigi ekki bara að loka þessari bloggsíðu og opna síðu undir sludurstelpan.bloggar.is - og engin ykkar veit að það er ég! Þá hef ég ákveðið að taka fyrir nemendafélag Bifrastar sérstaklega fyrir og skrifa mikið um þeirra einkalíf "spotted on the coffee house - wearing black jacket and jeans - talking to a mysterious blonde girl..." held þetta verði awesome síða hjá mér!
- xo xo slúðurstelpa
Ađ vera Idol eđa ekki Idol - ţađ er spurningin!
Ég hef alltaf verið þrjósk, og alltaf verið mjög holl mínum skoðunum, mín afstaða hefur alltaf verið að láta engann eiga mig þegar að það kemur að tilfinningalegri tjáningu sem tónlistin er. Ég tók því þá afstöðu þegar að Idol var sýnt í fyrsta skipti að þetta myndi ég aldrei vilja gera, því ég myndi aldrei skrifa undir samning sem bannaði mér að koma fram í einhvern vissan tíma á eftir nema með leyfi einhverra. Ég hefði aldrei viljað vinna keppnina þar sem ég hefði viljað vinna að eigin disk með eigin efni í næði, en ekki drífa mig að gefa út cover-disk því ég hefði unnið Idol. einnig spilaði það inn í mína ákvörðun að ég var viss um að ef einhver dómari segði eitthvað ljótt við mig þá færi ég pottþétt að grenja - og það í sjónvarpinu! Ekki gaman!
Í ár er staðan önnur - því nú er ekki lengur í boði plötusamningur - heldur 2 milljónir. Ég hef auðvitað skráð mig eins og alltaf, en ákvörðunin um hvort ég eigi að mæta eða ekki hefur aldrei verið erfiðari.
Setjum upp smá svona tré með eða á móti þessu öllu saman:
Ég fer í prufur: Það sem gerist er að ég mun vakna kl. 6:30 til að vera komin í bæinn kl. 8 þar sem ég fæ að hanga í allavega 6 klukkustundir (samanber almenna heppni mína) og syngja fyrir forvalsdómnefnd stöðvar 2. Það verður sveitt og ógeðslegt, og sennilega verð ég búin að missa röddina þegar að ég fer inn því það verða allir að spila á kassagítar og syngja í biðstofunni.
Ég fer ekki: Ég sef út og fer á skrall í kvöld með öllum góðu vinum mínum sem voru að koma heim úr skiptinámi. Fer svo í bæinn að kaupa popp og tyggjó (eða öllu heldur selja bækur) á morgun, og fer aftur uppá Bifröst um kvöldið.
Ef ég fer - áframhald:
Ég kemst áfram: Ég fæ rétt til að hanga áfram á Hilton hótel og bíða eftir að fá að syngja fyrir hina eiginlegu dómnefnd- Selmu, Björn Jörund og Jón Ólafs.
Kemst ekki áfram: Verð gífurlega svekkt yfir að hafa vaknað svona snemma og eytt svona löngum tíma í ekkert, þar sem það er nóg að læra.
Kemst áfram - framhald:
Ég kemst áfram: Ég syng fyrir SB, BJ og JÓ seinna um kvöldið á morgun, hress og örugglega vel út lítandi, stressuð og ógeðsleg.
Kemst ekki áfram: Ég fagna því alls ekki að hafa eytt hálfri helginni á Hilton hótel með 1600 öðrum í herbergi... eða þannig, þegar að ég hefði átt að vera að læra.
Kemst áfram - framhald
Ég kemst framhjá dómnefndinni: Ég fæ að koma aftur næstu eða þar næstu helgi og eyða þar heilli helgi í að vera súperstressuð og hress, sem gæti leitt til einhvers góðs að lokum þó.
Kemst ekki áfram: Sennilega komin svolítið á eftir í náminu, og illa lesin fyrir alla tíma og illa svekkt útaf öllum tímanum sem ég hef eytt í að hugsa um þetta.
Kemst áfram - framhald
Kemst áfram í sjónvarpið: Þá erum við kannski farin að tala aðeins saman, mín kannski svolítið sátt en stressaðri sem aldrei fyrr og vill ALLS ekki detta út hér. Skiptir öllu máli að vera ýkt sjarmerandi og skemmtilegur og helst lenda með slakasta fólkinu í hóp... hehehe....
Kemst ekki áfram í sjónvarpið: VERÐ BRJÁLUÐ yfir tímaeyðslunni.... hehehe..... þetta er alveg 100% vinna þetta nám hérna sko.
Kemst áfram í stóra lokahópinn: Hjólin gætu farið að rúlla, stuðíð yrði mikið, álagið óendanlega mikið, skólinn ekki svo góður og ég myndi sennilega fala á mætingu í föstudagstímunum. Háskólinn á Bifröst tekur lítið sem ekkert tillit til fólks sem á við sjúkdóma að stríða þegar að það kemur að mætingu (sennilega því námið er mikið byggt á þessum mætingatímum), þannig að von mín sem Idol-keppandi væri ansi lítil. Ef ég kemst í þennan hóp verð ég sennilega Silla Idol næstu svona 10 árin, sem er aðeins ásættanlegt viðurnefndi ef maður fær 2 milljónir fyrir :) haha!
Kemst ekki áfram í lokahópinn: orka, tími og álag fyrir basically EKKI NEITT!
Þið sjáið að hausverkur minn er afspyrnu segulmagnaður..... og þetta er ekki spurning um að hafa trú á sjálfum sér því þá trú flytji fjöll þá kemur hún manni ekki í gegnum áheyrnaprufur Idol, þú þarft actually að geta sungið, ekki bara trúað að þú getir það, og það þarftu að geta gert sveittur, stressaður og illa fölur fyrir dómnefnd....
Hér með opna ég fyrir umræðuna.... Er þetta ekki bara vitleysa þegar að maður er háskólanemi að drukkna í verkefnum??
Eftir allt er þetta spurning um að vega og meta vilja og getu!! (Kristrún... þetta var fyrir þig)
p.s. ég bjargaði lítilli pattaralegri mús í dag frá ketti sem var búinn að meiða hana.
Jólagjafalistinn
- 1. Kleinuhringur í hárið
- 2. Pæjuleg fartölvutaska, ekki svartur leðurhlunkur (t.d. til í Max1 frekar pæjuleg hliðartaska fyrir fartölvur)
- 3. Föt frá RYK design
- 4. Sálin hans Jóns míns - Hér er draumurinn (eru allt í allt 4 CD og 3 DVD, en hægt að kaupa í minni söfnum líka)
- 5. Ljósmyndaskanni svo ég geti skannað gömlu myndirnar og unnið þær.
- 6. Svunta í eldhúsið
- 7. Hversdagsleg leðurstígvél
- 8. Íþróttatoppur
- 9. Íþróttabuxur
- 10. Íþróttabolur - flottur
- 11. Skartgripaskrín
- 12. Stytta tl að hengja í hálsmen (af því ég á ekkert skartfgripaskrín)
- 13. Gjafakort í leikhús
- 14. Svart klassískt pils
- 15. Fallegan kjól :D Alltaf til í fallegan kjól.
- 16. Fallegir hárkambar
- 17. Krullujárn
- 18. Jólaleg og fín náttföt (ekki það að mig vanti þau samt)
- 19. Nærföt
- 20. Saumavél
- 21. Flottir lágir strigaskór
- 22. Júníform kjóll eða bolur...
- 23. Nýja línuskauta
- 24. Grifflur til að fara með í ræktina
- 25. Burberry brit body lotion (á nóg eftir af ilmvatninu)
- 26. Diesel nýja ilminn
- 27. Scrapbook set - alls konar til og ég elska það allt!!
- 28. Míkrófónn - svo töff að mæta með sinn eigin
- 29. Augnskugga
- 30. Penslasett (snyrtivöru)
- 31. Naglalakk
- 32. Naglasnyrtisett
- 33. Party og co Extreme
- 34. Trivial Persuit
- 35. Trivial Persuit - strákar og stelpur
- 36. Mr. And Mrs.
- 37. Falleg föt.
Geisladiskar:
- 38. Buff- Buff (Nýi Buff- diskurinn)
- 39. Emilíana Torrini - Me and Armini
- 40. Jeff who? - Jeff who?
- 41. 100 bestu lög lýðveldisins
- 42. Josh Groban - A collection
DVD:
- 43. Sex and the city safnið
- 44. Friends skápurinn
- 45. Desperate housewives
- 46. Sex and the city myndin
- 47. Mamma mia (þar sem ég hef ekki enn séð hana)
Bækur:
- 48. Fluga á vegg - Ólafur Haukur Símonarson
- 49. Góðir hlutir gerast hratt - Rósmara
- 50. Áður en ég dey - Jenny Downham
- 51. Beðmál í borginni - Candace Bushnell
- 52. Heilsuátak - Dr. Gillian McKeith
- 53. Dagbók Önnu Frank
- 54. Erla, Góða Erla - Erla Bolladóttir
- 55. Förðun - þín stund - Þuríður Stefánsdóttir
- 56. Konur eiga orðið allan ársins hring - dagatalsbók 2009
Mannvit
Sagan af ţví ađ fara til RVK á ABBA-show ţegar ađ mađur er 158 cm á hćđ....
Crazyness....
Það er 8. vika í skólanum af 11 sem segir okkur að það eru 3 vikur í lokapróf. Það er ekki að gera mig glaða, það er að gera mig vægast sagt stressaða þar sem ég hef lítið komist í að lesa bækurnar fyrir verkefnavinnu. ég veit ekki hvernig maður á að komast yfir þetta allt saman.
Um helgina ætla ég nú samt að fara héðan og anda pínu að mér öðru umhverfi í þeirri von að koma full af eldmóði til baka og með aðeins meiri lestrarhraða og enskukunnáttu væri fínt líka.
Það verður reykjavík í dag - pínu útréttingar
Svo gisti ég hjá Möggu minni og Sindri fer í Hveragerði.
Á morgun þurfum við stöllur svo að skjótast í eitt brúðkaup í Borgarnesi eða svo til að sinna hjálparhellu hlutverki fyrir hana Freyju.
Svo fer ég aftur með Möggu í bæinn og þangað sækir Sindri mig og við förum til Hveragerðis.
Á sunnudaginn er svo skírn á Selfossi hjá Ingunni vinkonu minni og ætla ég að reyna að stinga inn nefninu þar áður en við brunum í bæinn í mat til Sigga bróður.
Þetta er planið - ómerkilegt að öllu leyti... aðallega af því að það er ekkert gaman að lesa það og jafnvel af því að það er svo þétt að engu má bæta við.
Svekkelsi vikunnar: Ég er ekki ennþá búin að sjá Mamma Mia! Svekkjandi? I know!
Verkefni vikunnar: Klárlega verkefni í reikningshaldi og bókhaldi sem tók alltof marga klukkutíma en ég fattaði hvernig ætti að stemma af kl. 2 í fyrrinótt!
Harðsperrur vikunnar: Get ekki valið, en það var vont að setjast í gær og í fyrradag!
Matur vikunnar: Lambalærið í gær, og brownies og kakó.... oooojjjjojoj....
Hey! Mætingarlistinn er að ganga í tímanum sem ég er í! Ætla að skrá mig og fara!
bestu kveðjur heim til ykkar allra
Silla - metnaðurinn í fyrirrúmi... ekki svefn allavega




